Takk fyrir allar kveðjurnar,
elskurnar mínar, alltaf gaman að fá komment á síðuna
Annars er mest lítið að frétta af
mér. Ég er að reyna að komast á fullt aftur í ritgerðarvinnu og það
gengur hægt en þetta kemur allt saman. Af Helga er allt fínt að
frétta, hann stendur sig alltaf voða vel í vinnunni og hefur alveg
óendanlega gaman af því. Samstarfsfólk hans er alveg yndislegt og
það besta er að hann er að vinna við hlið Magga. En Helgi og Maggi
hafa verið nánast óaðskiljanlegir frá því þeir hófu nám í
efnaverkfræðinni í Háskólanum og auðvitað gátu þeir ekki annað en
farið að vinna saman. En þeir eru svo ótrúlega góðir í samstarfi að
þeir í vinnunni eru bara heppnir að fá þá báða til sín, eða það
finnst mér allavega
J
Og ég er alveg
hlutlaus til að dæma um það, hehehe.
Ég verð að segja
að mér finnst dagarnir líða alveg ótrúlega hratt, allt í einu
poppaði sumarið upp, vonum bara að það haldi áfram að vera svona
hlýtt og helst bara hlýrra (maður má nú alltaf vona
) En með
þessum hlýindum fylgir ávallt einhver leiðindi og að mínu mati eru
það STÓRU býflugurnar og svo auðvitað geitungarnir. En ég hef nú
aðallega rekist á þessar STÓRU flugur og ekki bara utandyra heldur
líka inni, í íbúðinni okkar. Einn morguninn þá vöknuðum við Helgi
klukkan sjö eins og venjulega og fórum á fætur, þegar ég nálgaðist
eldhúsið þá heyrði ég eitthvað smá suð.... zzzzzzzz.... mjög
skemmtilegt. Mér og Helga til mikillar gleði þá blöstu
við ekki ein, ekki tvær, heldur þrjár STÓRAR býflugur í
eldhúsglugganum. Þótt ég viti að þær geri nú ekki neitt nema maður
ergi þær verulega þá vildi ég nú samt ekki hafa þær suðandi
þarna í glugganum allan daginn. Þannig að Helgi hetja kom með
handklæði og náði þeim öllum.. my hero
J
J En síðan þá hef ég þurft að glíma
nokkrum sinnum við flugurnar ein þar sem Helgi var þá farinn í
vinnuna, en ég hafði það af!! En þessir litlu skrattar, STÓRU
býflugurnar, eru alveg að gera mig geðveika.
En já,
laugardaginn, 6.maí (afmæli Davíðs, til hamingju aftur
) héldum
við árshátíð D-bekkjar, sem er Kennó-bekkurinn minn. Ég og Jóhanna
vorum í skipulagsnefnd og skipulögðum þessa þrususkemmtilegu
árshátíð með bleiku þema og alles. Við fórum í línudans sem var
alveg þvílíkt stuð, skelltum okkur í Salalaugina og létum sólína
skína aðeins á okkur, borðuðum frábæran mat frá Vegamótum, fórum í
partýleiki, drukkum bleika kokteila og skemmtum okkur bara alveg
konunglega, enda ekki annað hægt með svona yndislegum hópi. Eitt
verkefnið sem við létum stelpurnar gera var að nefna öll börn sem
hafa fæðst í D-bekknum frá því við byrjuðum í Kennó og setja þau í
tímaröð.. Stelpurnar tóku þessu verkefni vel og byrjuðu á fullu að
finna réttu lausnina!! En annars er þessi bekkur búinn að vera mjög
duglegur í barneignum og það hafa fæðst 15 börn í þennan hóp frá
því um haustið 2000 og 2 börn á leiðinni sem við vitum
af
J
Og ég hef ekki einu
sinni byrjað, hehehe, greinilega ekkert að standa mig í
þessu!!!
Um þessa helgi fór
ég út á land með tilvonandi tengdamóður minni og saumaklúbb hennar.
Ein skvísan í hópnum á lítinn bóndabæ sem heitir Skrapatunga og
hann er alveg yndislegur. Við lögðum af stað 5 skvísur seinni part
föstudags og síðan komu tvær í viðbót á laugardaginn. Þetta var
alveg frábær helgi, nokkrar komu með heila tösku af ýmsum kremum og
fleiru til að lappa aðeins upp á útlitið og við eyddum því nánast
öllu föstudagskvöldinu í svokallað spa og afslöppun, þvílíkt nice.
Á laugardaginn var svo farið í sund og kaupfélagið á Blöndósi og
auðvitað var verslað þar eins og maður gerir alltaf í þessum
krúttulegu kaupfélögum úti á landi. Síðan lærðum við línudans,
samblöndu af magadansi og riverdansi, sungum, dönsuðum, borðuðum
MIKIÐ af GÓÐUM mat, drukkum og skemmtum okkur ótrúlega vel. Ég
skemmti mér allavega rosa vel enda eru þessar skvísur í
saumaklúbbnum alveg ótrúlega hressar og fjörugar.
Núna er rétt rúm
vika þar til við förum til Stokkhólms til að vera á
útskriftarathöfn Helga. Ég hlakka mikið til að komast aftur til
Stokkhólms, ekki bara af því að þetta er yndisleg borg heldur líka
til að hitta alla vini okkar þar. Það er nú ekki hægt að segja
annað en að við söknum þeirra, hressu krakkana í
Stokkhólmi
J
En jæja, þetta er
orðið ansi löng færsla en það verður bara að hafa það, ég skrifa nú
svo sjaldan...ehehehe
Knús, knús til ykkar
allra...